12 Loforð CoDA
Ég má búast við breytingum á lífi mínu ef ég stunda CoDA-prógrammið. Þegar ég reyni að vinna sporin og fylgja erfðavenjunum af heiðarleika upplifi ég eftirfarandi:
1. Mér finnst ég loksins vera hluti af einhverju. Tómleikinn
og einmanaleikinn hverfur.
2. Óttinn stjórnar mér ekki lengur. Ég kemst yfir hann
og tileinka mér hugrekki, heilindi og sjálfsvirðingu í
öllu sem ég tek mér fyrir hendur.
3. Ég kynnist nýju frelsi.
4. Ég sleppi tökunum af áhyggjum, sektarkennd og eftirsjá
vegna fortíðar minnar og nútíðar. Ég er nógu
meðvituð/aður til að endurtaka ekki það sem miður
fór.
5. Ég kynnist nýjum kærleika og sátt við mig og aðra.
Mér finnst ég raunverulega verðug/ur ástar, kærleiksrík/
ur og elskuð/aður.
ix
x CoDA bókin
6. Ég læri að finnast ég vera jafningi annarra. Ný, sem
og endurnýjuð sambönd mín, eru öll við jafningja
mína.
7. Ég get þróað og viðhaldið heilbrigðum og kærleiksríkum
samböndum. Þörfin til að stjórna öðrum
hverfur þegar ég læri að treysta þeim sem eru traustsins
verðir.
8. Ég læri að það er mögulegt að breytast til hins betra
– að verða kærleiksríkari, nánari öðrum og að geta
veitt stuðning.
9. Ég geri mér grein fyrir að ég er einstök og dýrmæt
sköpun.
10. Ég þarf ekki lengur að treysta eingöngu á aðra til
að finnast ég einhvers virði.
11. Ég treysti leiðsögn sem ég fæ frá mínum Æðri Mætti
og fer að trúa á eigin getu.
12. Ég öðlast smám saman æðruleysi, styrk og andlegan
þroska í daglegu lífi mínu.
Fyrri síða: Fundaskrá
Næsta síða: Atferlismynstur og einkenni meðvirkni