- Sameiginleg velferð okkar situr í fyrirrúmi; bati hvers einstaklings er undir einingu CoDA-samtakanna kominn.
- Deildir okkar eiga sér aðeins einn leiðtoga, kærleiksríkan Æðri Mátt, eins og Æðri Máttur birtist samvisku hvers hóps. Forsvarsmenn okkar eru þjónar sem við treystum en ekki stjórnendur.
- Til þess að gerast CoDA-félagi þarf aðeins eitt: viljann til að stofna til heilbrigðra og kærleiksríkra tengsla við aðra.
- Sérhver deild skal vera sjálfstæð nema í málum er varða aðrar deildir eða CoDA-samtökin í heild.
- Sérhver deild hefur aðeins eitt meginmarkmið: Að flytja meðvirkum sem enn þjást boðskap samtakanna.
- CoDA-deild ætti aldrei að ljá öðrum samtökum eða málstað nafn sitt, fjármagn eða fylgi svo lausafé, eignir eða upphefð fjarlægi okkur ekki upphaflegum tilgangi.
- Sérhver CoDA-deild ætti að standa á eigin fótum og hafna utanaðkomandi fjárhagsaðstoð.
- Félagar í CoDA-samtökunum eru ætíð einungis áhugamenn, en þjónustustöðvar okkar mega ráða launað starfsfólk.
- CoDA-samtökin sem slík ætti aldrei að skipuleggja; en við getum myndað þjónustunefndir og ráð sem eru ábyrg gagnvart þeim sem þau starfa fyrir.
- CoDA-samtökin taka ekki afstöðu til annarra mála en sinna eigin. Nafni þeirra ætti því að halda utan við deilur og dægurþras.
- Afstaða okkar út á við byggist fyrst og fremst á aðlöðun en ekki áróðri. Í fjölmiðlum ættum við alltaf að gæta nafnleyndar.
- Nafnleyndin er andlegur grundvöllur allra erfðavenja okkar og minnir okkur á að setja málefni og markmið ofar eigin hag.
Þýðing í sjálfboðavinnu af þýðingarnefnd í samráði við www.coda.org