Samstarfsnefnd CoDA

Hlutverk og tilgangur

Samstarfsnefnd er þjónustuaðili fyrir CoDA samtökin á Íslandi og samanstendur af tveim fulltrúum frá hverri CoDa deild á landinu. Samstarfsnefndin sér um samstarf við erlend CoDa samtök, útgáfu-, þýðingar- og sölu á bókum, kynningarmál og allt sem hefur með samtökin í heild að gera.

Allir sem vilja vinna við að efla hagsmuni samtakana eru hvattir til að mæta á fundi Samstarfsnefndar sem gestir, sem fulltrúar deilda eða í þjónustuhlutverkum innan Samstarfsnefndar.

Samstarfsnefnd fundar annan þriðjudag hvers mánaðar á fjarfundi.

Reikningsnúmer Samstarfsnefndar er 0301-13-304030 og kennitalan er 690110-1720.

Embætti og netföng

  • Deildarfulltrúar
  • Oddviti
  • Ritari
  • Gjaldkeri
  • Bókateymi (3 aðilar)
  • Kynningateymi (3 aðilar)

Hlutverk embætta

Deildarfulltrúar – Varafulltrúar
  • Sitja í samstarfsnefnd samkvæmt starfstíma heimadeildar sinnar
  • Mæta á fundi nefndarinnar og eru tengiliðir við sína heimadeild
  • Eru virkir og taka að sér umbætti og verkefni nefndarinnar
  • Deildarfulltrúar hafa fullan atkvæðarétt á fundum samstarfsnefndar
  • Varafulltrúi deildarfulltrúa sem mætir á samstarfsnefndarfund ásamt aðalfulltrúa hefur ekki atkvæðarétt á fundinum
  • Varafulltrúi deildarfulltrúa sem tekur við verkefnum og skildum samstarfsnefndarfulltrúa í hans fjarveru, hefur fullan atkvæðarétt á fundum

Oddviti
  • Starfstími er 9 mánuðir
  • Boðar til funda nefndarinnar með SMS skilaboðum
  • Stjórnar fundum samkvæmt gefnu fundarformi

Ritari
  • Starfstími er 6 mánuðir
  • Ritar fundargerðir í fundargerðarskjal
  • Leggur fundargerðir inn á heimasvæði
  • Birtir fundargerðir á fundum á skjá og les upp til samþykktar

Gjaldkeri – Varagjaldkeri
  • Starfstími er 2 ár
  • Er prókúruhafi á reikningum og ábyrgur fyrir fjármálum nefndarinnar ásamt varamanni
  • Kynnir stöðu reikninga á mánaðarlegum fundum
  • Greiðir reikninga og heldur bókhald yfir fjárreiðu nefndarinnar
  • Gerir skil á ársreikningi í febrúar ár hvert
  • Varagjaldkeri er kosinn af samstarfsnefnd úr hópi fulltrúa
  • Varagjaldkeri er kosinn á sama tíma og gjaldkeri

Bókateymi
  • 3 fulltrúar, starfstími 1 ár
  • Ber ábyrgð á fjármálum bóksölu og kynnir stöðu reiknings á mánaðarlegum fundum
  • Sér um kynningar og sölu til bókafulltrúa í deildum
  • Sér um að panta CoDA bækur og bæklinga
  • Forgangsraðar og hefur umsjón með þýðingum á CoDA efni samtakanna
  • Sér um tilboðsgerð í lokafrágang og prentun á efni
  • Sér um samskipti á vegum CoDA við TMC (Translation Management Committe) í Bandaríkjunum

Kynningarteymi
  • 3 fulltrúar, starfstími 1 ár
  • Hafa umsjón með heimasíðu CoDA samtakanna – www.coda.is
  • Hefur umsjón með öðru kynningarefni t.d. prentun á veggspjöldum og tilfallandi auglýsingum
  • Sér um kynningar á samtökunum þegar utanaðkomandi aðilar óskað eftir því
  • Sér um kynningar á sameiginlegum vettvangi 12 sporasamtaka
  • Uppfæra netföng samstarfsnefndar

Alþjóðlegt samstarf CoDA