12 Erfðavenjur CoDA

  1. Sameiginleg velferð okkar situr í fyrirrúmi; bati hvers einstaklings er undir einingu CoDA-samtakanna kominn.
  2. Deildir okkar eiga sér aðeins einn leiðtoga, kærleiksríkan Æðri Mátt, eins og Æðri Máttur birtist samvisku hvers hóps. Forsvarsmenn okkar eru þjónar sem við treystum en ekki stjórnendur.
  3. Til þess að gerast CoDA-félagi þarf aðeins eitt: viljann til að stofna til heilbrigðra og kærleiksríkra tengsla við aðra.
  4. Sérhver deild skal vera sjálfstæð nema í málum er varða aðrar deildir eða CoDA-samtökin í heild.
  5. Sérhver deild hefur aðeins eitt meginmarkmið: Að flytja meðvirkum sem enn þjást boðskap samtakanna.
  6. CoDA-deild ætti aldrei að ljá öðrum samtökum eða málstað nafn sitt, fjármagn eða fylgi svo lausafé, eignir eða upphefð fjarlægi okkur ekki upphaflegum tilgangi.
  7. Sérhver CoDA-deild ætti að standa á eigin fótum og hafna utanaðkomandi fjárhagsaðstoð.
  8. Félagar í CoDA-samtökunum eru ætíð einungis áhugamenn, en þjónustustöðvar okkar mega ráða launað starfsfólk.
  9. CoDA-samtökin sem slík ætti aldrei að skipuleggja; en við getum myndað þjónustunefndir og ráð sem eru ábyrg gagnvart þeim sem þau starfa fyrir.
  10. CoDA-samtökin taka ekki afstöðu til annarra mála en sinna eigin. Nafni þeirra ætti því að halda utan við deilur og dægurþras.
  11. Afstaða okkar út á við byggist fyrst og fremst á aðlöðun en ekki áróðri. Í fjölmiðlum ættum við alltaf að gæta nafnleyndar.
  12. Nafnleyndin er andlegur grundvöllur allra erfðavenja okkar og minnir okkur á að setja málefni og markmið ofar eigin hag.

Þýðing í sjálfboðavinnu af þýðingarnefnd í samráði við www.coda.org