Nýliðaupplýsingar

Hérna er að finna hjálplegar upplýsingar fyrir nýliða

CoDA er félagsskapur karla og kvenna sem eiga þann sameiginlega tilgang að þróa með sér heilbrigð sambönd.

Við komum saman til að deila með hvort öðru reynslu okkar, styrk og vonum á leið okkar til sjálfsvakningar – lærum að elska sjálfið.

Að lifa prógramið leyfir hverju okkar að verða heiðarlegri við okkur sjálf með því að skoða okkar persónulegu sögu og eigin meðvirku hegðun.

Við treystum á tólf spor og tólf erfðavenjur í leit að þekkingu og visku. Þetta eru meginreglur pógrams okkar og leiðbeina okkur til þess að geta átt heiðarleg og fullnægjandi samskipti við okkur sjálf og aðra.

Inntöku- eða félagsgjöld eru engin, en með innbyrðis samskotum sjáum við okkur efnalega farboða.

Upplýsingar um fundi

  • Hvað gerist á fundum?
  • Hvernig finn ég fund?
  • Hvað eru margir á fundinum?